Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN056102 þannig að plata yfir stofurými er þykkt og mænir hækkaður sem því nemur, glerhandriðum er breytt í steypt á einbýlishúsi á lóð nr. 31 við Langholtsveg. Erindi fylgir yfirlit breytinga mótt. 23. september 2020. Gjald kr. 11.200