Hrefnugata 6
Hrefnugata 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Emil Húni Bjarnason
Byggingarfulltrúi nr. 1098
12. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
031183-3329 Emil Húni Bjarnason, Hrefnugata 6, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að hækka þak, byggja kvisti og stækka með því íbúð 2. hæðar ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðri breytingu á kjallaraíbúð þar sem stofa hefur verið stækkuð útundir svalir 1. hæðar og gerð hurð út á verönd, einnig að rífa geymsluskúr og byggja nýjan vestan við fjölbýlishús á lóð nr. 6 við Hrefnugötu. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa ódagsett, áritað á teikningar. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. janúar 2021 ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Hrefnugötu 3, 4, 5, 7 og 8 og Kjartansgötu 3, 5 og 7 frá 2. desember 2020 til og með 31. desember 2020. Engar athugasemdir bárust. Stækkun: 99,3 ferm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu
byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.