Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. hæðar þannig að afgreiðsluborð er fært til í veitingahúsi í flokki II, tegund E. Kaffihús, fyrir 55 gesti, í húsi á lóð nr. 18 við Hverfisgötu. Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti af teikningu samþykkt 10. september 2013 og ódags. samþykki 365 hf og IP fyrir samnýtingu rýma. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.