Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053949 vegna lokaúttektar á veitingarstað fl.I tegund E kaffihús, og eru breytingar þær að sorp hefur verið fært á baklóð, opnunarátt inngangshurðar breytt, vaskur í afgreiðslu færður og staðsetning færanlegs ramps breytt við húsið á lóð nr. 10A við Bergstaðastræti. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 20. ágúst 2020 og samþykki eiganda lóðar vegna sorps dags. 06. október 2020. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.