Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN055571, sem felst í að vinnustofu 0102 er breytt í íbúð þannig að íbúðir verða 7 í stað 6 og til að breyta innra skipulagi og umgjörð glugga á suðurhlið húss á lóð nr. 34 við Nýlendugötu. Erindi fylgir A3 sett með yfirliti yfir breytingar. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Erindi er til umfjöllunar hjá skipulagsfulltrúa.