Sótt er um leyfi til að gera tvennar nýjar dyr í kjallara til norðurs en loka einum dyrum á núverandi stigahúsi, setja nýja glugga á þrjá vegu í turnherbergi, síkka glugga í kjallara til norðurs og múra upp í glugga kjallara að Þingholtsstræti, gera svalir í horni við stigahús á 2. hæð til norðurs og gera hurð í gluggastæði, reisa skyggni yfir nýjum kjallarainngangi og breyta innra skipulagi í húsi á lóð nr. 7 við Skálholtsstíg. Erindi fylgir umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 25. júní 2020. Gjald kr. 11.200