Súðarvogur 2
Súðarvogur 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1100
26. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
520220-3210 Vogabyggð ehf., Pósthólf 8787, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja sex hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum, fjórum atvinnurýmum og bílgeymslu fyrir 15 bíla sem verður Kuggavogur 26 á lóð nr. 2 við Súðarvog. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. ágúst 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. ágúst 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. ágúst 2020. Erindi fylgir einnig greinargerð aðalhönnuðar, brunahönnun frá Brunahönnun slf., dags. 21. júlí 2020 og hljóðvistarskýrsla frá Hljóðtæknilausnir dags. 25. júní 2020, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. janúar 2021, bréf skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2021 og bréf frá hönnuði dags. 22. janúar 2021. Stærð mhl. 01, A-rými: 2.385,7 ferm., B-rými: 100,2 ferm. Samtals: 2.485,9 ferm., 8.417,7 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.