Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi í rými 0110 á 1. hæð og koma fyrir í kjallara, rými 0003, kjötpökkunaraðstöðu ásamt aðstöðu til eldunar á kjúklingi fyrir matvöruverslun í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 68 við Háaleitisbraut. Erindi fylgir mæliblað 1.727.3 endurútgefið í janúar 1972 og yfirlit breytinga. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.