Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN057128 þannig að svalir á austurhlið 1. hæðar verða steinsteyptar með handriði úr smíðajárni, svalagólf með hitalögn og flísalögn og undir svölum er að hluta til gert ráð fyrir skýli með opinni klæðningu, við íbúðarhús á lóð nr. 10 við Sólvallagötu. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 24. júní 2020. Gjald kr. 11.200