Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN054482, sem felst í því að opnað er inn í hol frá anddyri, uppröðun í eldhúsi breytt, brunahurð sett inn í bílskúr, byggt yfir útisvæði á norðurhorni lóðar og gerður hlaðinn stoðveggur á lóðarmörkum nr. 1 og 3 á lóð nr. 1 við Freyjubrunn. Stækkun B-rýmis : 11 ferm. og 30,1 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.