Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús með 7 íbúðum og verslun í vesturhluta 1. hæðar á lóð nr. 2 við Norðurbrún. Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 26. maí 2020, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. júní 2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2020. Stærð, A-rými: 903 ferm., 2.773,3 rúmm. Gjald kr. 11.200