Brautarholt 4-4A
Brautarholt 4-4A 12.41.203
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1115
18. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
670716-0900 V Tólf Fasteignir ehf., Hófgerði 2, 200 Kópavogur Sótt er um leyfi til að hækka þak 4. hæðar til suðurs, byggja einnar hæðar viðbyggingu á bakhlið, stækka og síkka glugga og koma fyrir svölum á báðum hliðum, koma fyrir lyftu og innrétta 14 íbúðir á 2., 3. og 4. hæð og verslun á jarðhæð, einnig til að byggja einnar hæðar byggingu að lóðamörkum í austur og suður þar sem innréttuð verður sorp- og hjólageymsla og geymslur íbúða með verönd á þaki á og við hús nr. 4, mhl. 01, á lóð nr. 4-4A við Brautarholt. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar um algilda hönnun dags. 21. febrúar 2017, samþykki meðlóðarhafa dags. 12., 13. og 18. maí 2020, bréf hönnuðar dags. 29. september 2020 og tillaga að nýju lóðarblaði mótt. 29. september 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. ágúst 2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst ágúst 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 4 og 6, Skipholti 1, 3 og 5 og Mjölnisholti 12 -14, frá 18. nóvember 2020 til og með 8. janúar 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: PK Arkitekta ehf., Pálmar Kristmundsson, dags. 27. nóvember 2020 og 7. janúar 2021 og Sigurður G Guðmundsson f.h. PKdM Arkitekta ehf. dags. 7. janúar 2021. Stækkun: 206,6 ferm., 722,1 rúmm. Eftir stækkun, A-rými: 1.181,1 ferm., 4.105,1 rúmm. B-rými: 18,8 ferm., 53,5 rúmm.
Svar

Vísað til athugasemda.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103021 → skrá.is
Hnitnúmer: 10060701