Borgartún 24
Borgartún 24 12.21.101
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1117
1. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
650908-0310 EE Development ehf., Borgartúni 24, 104 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja 3-7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum, verslunarrýmum á jarðhæð og bílakjallara fyrir 39 bíla á lóð nr. 24 við Borgartún. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist frá Mannvit dags. 18. maí 2020, brunahönnun frá Mannvit dags. 14. apríl 2021, teikningar sem sýna skiptingu húss og yfirlit breytinga. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. maí 2021, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2021 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. febrúar 2021. Stærð, mhl. 05, A + B-rými: 9.232,2 ferm., 28.090,9 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102800 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007630