Furugerði 23
Furugerði 23 01.80.740.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1117
1. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
640517-0850 EA11 ehf., Tónahvarfi 6p, 203 Kópavogur Sótt er um leyfi til þess að byggja tvö 10 íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum á reit A og 10 íbúða raðhús á tveimur hæðum á reit B með sameiginlegan bílakjallara á lóð nr. 23 við Furugerði. Stærð, A-rými: 3.266,9 ferm., 10.163 rúmm. B-rými: 1.438,4 ferm., 4.316,6 rúmm. Samtals: 4.705,3 ferm., 14.479,6 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.807.4 dags. 27. mars 2020, hæðablað 1.807.4 samþykkt í mars 2020, teikningaskrá aðaluppdrátta, afrit af greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 5. maí 2020, greinargerð hönnuða dags. 30. apríl 2020, reiknuð U-gildi dags. 5. maí 2020, greinargerð Mannvits ehf um hljóðvist, útgáfa 1.0, dags. 4. maí 2020, greinargerð burðarvirkishönnuðar, Element ehf, dags 28. febrúar 2020, greinargerð um brunavarnir frá Mannvit dags. 16. apríl 2021, ódagsett greinargerð um algilda hönnun, fylgibréf hönnuða dags. 22. mars 2021 og annað ódagsett. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. maí 2021, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. maí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107818 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010133