Sótt er um leyfi til að breyta stálhurð í glerhurð, hurðargat stækkað, komið fyrir útigeymslu undir stiga og skjólþak sett yfir gönguleiðir á 6. og 7. hæð á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 26 við Mýrargötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. maí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2020. Stækkun vegna geymslu og skjólþaks.: XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2020 og til athugasemda.