Sótt er um leyfi til þess að breyta útitröppum, bæta við glugga á vesturhlið, síkka kjallaraglugga á suðurhlið, gera útskotsglugga til austurs með hurð út á pall frá eldhúsi, endurnýja skorstein og steypt grindverk að götuhlið íbúðarhúss á lóð nr. 10 við Sólvallagötu. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 20. desember 2019 og minnisblað með umsögn burðarvirkishönnuðar dagsett 9. desember 2019. Sjá einnig fylgiskjöl með erindi BN056976. Stækkun: 3.1 ferm. 45.3 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2020.