Sótt er um leyfi til að setja upp eldunaraðstöðu á 1. hæð, veitingastaðar í flokki III, tegund b, í húsi á lóð nr. 4 við Hafnarstræti. Erindi fylgir afrit af samþykktum teikningum, frá hönnuði, með yfirliti yfir breytingar, umsögn Minjastofnunar dags. 27. nóvember 2019, brunahönnun Eflu endurskoðuð í október 2019 og brunahönnun Eflu endurskoðuð í nóvember 2019 og í janúar 2020. Einnig fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. desember 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Sækja þarf sérstaklega um leyfi fyrir útiveitingar. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.