Sótt er um leyfi fyrir billjarðstofukrá með vínveitingaleyfi, fyrir 30 gesti, veitingastað í flokki II tegund F, í rými 03-0201 í húsi á lóð nr. 8 við Skólavörðustíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. ágúst 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.