Rafstöðvarvegur 25 04.25.730.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1026
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að endurbyggja bílskúr, byggja baðhús sunnan húss og byggja steinsteypta viðbyggingu við suðausturhlið einbýlishúss á lóð nr. 25 við Rafstöðvarveg.
Samtals stækkun: 189,7 ferm., 903,1 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.