Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN035873 v/lokaúttektar þannig að innréttuð hefur verið skrifstofuaðstaða á 2. hæð austur og mötuneyti á 1. hæð austur ásamt því að gerður hefur verið flóttastigi frá 2. hæð í húsi á lóð nr. 22 við Koparsléttu. Stækkar um 5,5 ferm., minnkar um 680,6 rúmm. Stærð eftir stækkun: 3.619,7 ferm., 19.250,8 rúmm. Jafnframt er erindi BN056124 dregið til baka. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.