Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og notkunarflokki byggingar þannig að veitingahúsnæði verði breytt í skrifstofur í húsi á lóð nr. 10 við Tryggvagötu. Erindi fylgir mæliblað 1.132.1 dags. 28. júní 1996, endurútgefið 15. ágúst 2016, hæðablað 1_1_3564 teiknað 6. apríl 1986, bréf frá hönnuði dags. 9. apríl 2019 og minnisblað v. brunatexta unnið af verkfræðistofu
Verkís hf.
dags. 8. apríl 2019, staðfesting á lóðamarkabreytingu, dags. 22. maí 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.