Sótt er um leyfi fyrir óverulegri breytingu á þaki í kjölfar viðhalds þar sem mænir er hækkaður, kvistur gerður norðan megin og þakkantar endurnýjaðir ásamt því að skipt er um glugga, innra skipulagi er breytt og innréttingar endurnýjaðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 45A við Grettisgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júlí 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2019 Stækkun: 76,1 ferm., xx.x rúmm. Nýtingarhlutfall: 2.67 Erindi fylgir bréf frá Verkhof ehf dags. 13. mars 2019 varðandi teiknigögn og bréf frá Alark arkitektar ehf dags. 15. maí 2019. Gjald: 11.200 kr
Svar
Synjað Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. júli 2019.