Sótt er um breytingar á erindi BN055470 þar sem hjólageymslu er breytt að hluta til í geymslu fyrir gaskúta, innra skipulagi Mathallar breytt og loftræstistokkar á austurhlið eru færðir á vesturhlið húss á lóð nr. 9 við Bíldshöfða. Erindi fylgir skýringaruppdrættir, smækkaðar teikningar nr. 1.01-03 og 1.01-04 mótt. 26. febrúar 2019 og bréf hönnuðar dags. 07. mars 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.