Langagerði 14 01.83.200.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1036
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr, einangraðan að innan, með timburþaki á lóð nr. 14 við Langagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. mars 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. mars 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. ágúst 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2019. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Langagerði 12 og 16 frá 15. apríl til og með 13. maí 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðný J. Valberg og Ólafur Eggertsson, dags. 2. maí 2019.
Stærð bílskúrs er: 49,3 ferm., 163,8 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108534 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014943
Síðasta markaðsverð
44.100.000 kr.
Einbýli · 114 m² · 29.02.2016
Kaupskrá 1 eign
44.100.000 kr. 29.02.2016
Einbýli · 114 m² · 6 herb. · bygg. 1961 · HMS