Sótt er um leyfi til að breyta sameign á 1. hæð, leikherbergi og hjóla-/vagnageymslu í íbúð, einnig er sótt um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem geymsla er sameinuð íbúð 01-0101 þannig að íbúð 01-0101 stækkar um tæpa tvo fermetra á kostnað sameignar í húsi nr. 6 við Þrastarhóla. Erindi fylgir tölvupóstur frá hönnuði dags. 4. mars 2019 með afriti af skilmálabreytingu í deiliskipulagi, teikningu og samþykki eigenda í húsi nr. 6, 8 og 10. Gjald: kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.