Sótt er um að hækka þak og byggja kvisti til norðurs og suðurs ásamt því að innrétta íbúðarrými í risi, reisa viðbyggingu á tveimur hæðum til suðurs ásamt svölum fyrir 2. hæð og svölum á þaki viðbyggingar, aðgengilegum úr risi íbúðarhúss á lóð nr 8 við Hólmgarð. Um er að ræða tveggja hæða íbúðarhús með tveimur íbúðum og sérinngangi. Samliggjandi er samhverft hús á lóð nr 6 og er verið að sækja um samskonar breytingu á því húsi. Erindi fylgir óþinglýst yfirlýsing og kvöð um samþykki eigenda Hólmgarðs 6 og 8 dags. október 2018. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. febrúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019.