Sótt er um leyfi til að koma fyrir matarmarkaði og sex veitingastöðum í rými 0104, einum í flokki I - tegund C og fimm í flokki II - tegund C, ásamt starfsmannarými og þurrvörulager í hluta rýmis 0105 í húsi á lóð nr. 9 við Bíldshöfða. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. nóvember 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. nóvember 2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.