Sótt er um leyfi til þess að fjölga eignarhlutum úr einum í þrjá, stækka hús sem nemur inndregnum svölum, fjarlægja svalir á suðurhlið og byggja nýjar á norðurhlið ásamt því að breyta innra fyrirkomulagi í húsi á lóð nr. 2 við Tjarnarsel. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2018. Gjald kr. 11.000