Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við veitingasal á fyrstu hæð á norðausturhorni og áður gerða viðbyggingu á 7. hæð og innrétta 8 hótelherbergi í rými 0701 í húsi á lóð nr. 32 við Borgartún. Áður samþykkt 22.04.2008 sem erindi BN035777. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 29. október 2018 og bréf hönnuðar dags. 9. nóv. 2018 fylgir erindi. Stækkun: 79,7 ferm., 269,4 rúmm. Áður gerð stækkun á 7. hæð 92,2 ferm., 392,6 rúmm. Samtals: 171,9 ferm., 662,0 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.