Á fundi skipulags- og samgönguráðs 15. maí 2019 var lagt fram bréf Sigurðar Harðarssonar f.h. eigenda að fasteigninni Miðtún 82 dags. 8. apríl 2019 til skipulags- og samgönguráðs þar sem farið er fram á að grein um hámarksfjölda íbúða á lóð í samþykktu deiliskipulagi Túna frá 27.október 2010 verði endurskoðuð. Erindinu var vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2019.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2019.
Gestir
Lilja Grétarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.