Sótt er um leyfi til að stækka baðherbergi í kjallara með með því að taka í notkun óuppfyllt rými, byggja yfir svalir, gera nýjar og innrétta baðherbergi á fyrstu og annarri hæð í húsi á lóð nr. 9 við Hávallagötu. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 6. september 2018, samþykki frá öðrum eiganda Hávallagötu 11, dags. 1. september 2018 og samþykki eiganda Sólvallagötu 4 fylgja erindi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2018. Stækkun: 12,1 ferm., 31,2 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2018.