Sótt er um breytingu á erindi BN054047 sem felst í breytingum á skábrautum, neyðarlýsingu, starfsmannarými og tæknirými á 3. og 5. hæð í gististað í flokki ll í húsi á lóð nr. 6-8 við Bolholt. Erindi fylgja bréf frá SHS og mynd af skábraut. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.