Sótt er um leyfi til að endurskipuleggja 2. og 3. hæð, stækka 4. hæð yfir svalir til suðurs og innrétta þar 11 gistirými sem verða viðbót við núverandi gististað í flokki II, teg. b fyrir samtals 66 gesti í 32 herbergjum í húsi nr. 4 á lóð nr. 4-4A við Brautarholt. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 17. september 2018. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. október 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2018. Stækkun: 46,2 ferm., 82,2 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til grenndarkynningar. Vísað til uppdrátta nr. 101, 102, 103 dags. 21. ágúst 2018.