Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1002
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt um leyfi til að byggja garðstofu, koma fyrir svölum ofan á garðstofuna þar sem gengið er út frá 1. hæð, breyta innra skipulagi íbúðar í kjallara og breyta útliti á stofugluggum í kjallara í húsinu á lóð nr. 32 við Háteigsveg.
Bréf frá eigendum hús þar sem hönnuði er veitt leyfi til að sækja um byggingaleyfi fyrir breytingum á húsinu dags. 12. júní 2018.
Stækkun vegna garðstofu er: 16,0 ferm., 44,9 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. nóvember 2018 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Háteigsvegi 30, 34 og 36 og Flókagötu 45, 47, 49 og 49A frá 3. október 2018 til og með 31. október 2018. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000 + 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103261 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012388
Síðasta markaðsverð
71.000.000 kr.
Fjölbýli · 144 m² · 22.12.2017
Kaupskrá 2 eignir
71.000.000 kr. 22.12.2017
Fjölbýli · 144 m² · 3 herb. · bygg. 1946 · HMS
90.000.000 kr. 10.02.2014
Fjölbýli · 306 m² · 8 herb. · bygg. 1946 · HMS