Sótt er um leyfi til að fjarlægja millivegg í vörugeymslu ásamt áður gerðum breytingum sem gerðar hafa verið á innra fyrirkomulagi vörugeymslu í húsum á lóð nr. 7 og 9 við Skútuvog. Erindi fylgir minnisblað um brunavarnir dags. 14. september 2018 og bréf hönnuðar með skýringum dags. 17. september 2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.