Sótt er um leyfi til að lækka gólf í kjallara bakhúss, grafa frá, gera nýjan stiga og glugga úr kjallara og til að breyta innra skipulagi á báðum hæðum bakhúss og í kjallara framhúss , innrétta tvær íbúðir og vinnustofu sem verða áfram ein eign, þar sem áður var "ósamþykkt íbúð" í fjölbýlishúsi á lóð nr. 18 við Laufásveg. Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt og húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 16. apríl 2019. Stækkun: 23,2 rúmm. Gjald kr. 11.000