Fyrirspurn
420502-5910 Hótel Holt Hausti ehf., Stigahlíð 80, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum loftstokkum upp úr þaki og til að byggja yfir þá á
þaki húss á lóð nr. 37 við Bergstaðastræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. apríl 2019
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2020
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2020. Erindi var
grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðarstræti 33, 33a, 33b, 43 og 43a
Baldursgötu 9, Óðinsgötu 22, 22a, 24, 24a, 26, 28, 28b, 30, 30a, 32, 32a og 32b frá 18.
ágúst 2020 til og með 15. september 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Ólína
Salome Torfadóttir dags. 9. september 2020 og Heiða Jóhannsdóttir dags. 15.
september 2020.