Sótt er um leyfi til að útbúa þaksvalir á neðra þak byggingar og endurnýja svalahandrið á húsinu á lóð nr. 14 við Sjafnargötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. júní 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2018. Umsögn Minjastofnun Íslands dags. 18. júní 2018 fylgir erindinu. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdrættir nr. 1, 2, 3 dags. 29. maí 2018.