Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN037804, sem felst í að breytt fyrirkomulag er á lóð, dyrum hefur verið komið fyrir milli bílgeymslu og anddyris og innra skipulagi kjallara hefur verið breytt, v/lokaúttektar í einbýlishúsi á lóð nr. 15 við Gerðarbrunn. Erindi fylgir samþykki lóðarhafa vegna frágangs á lóðamörkum nr. 13. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.