Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta, óeinangraða útigeymslu sem á að vera opin að hluta, koma fyrir steyptum 90 cm háum vegg við verönd sem kemur ofan á útigeymslu, koma fyrir heitum potti norðausturhorni lóðar og gerð grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi í húsi á lóð nr. 27 við Jónsgeisla. Samþykki aðliggjandi lóðar nr. 11, 13, 15 og 25 Jónsgeisla. Stærð útigeymslu sem er B rými : 24,7 ferm., 71,0 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.