Sótt er um leyfi til að byggja vinnustofu á lóð, endurbyggja garðstofu og setja þar þaksvalir og hækka bíslag við anddyri í húsi á lóð nr. 12 við Hörpugötu. Stækkun: 20,1 ferm., 99,9 rúmm. Umsögn skipulagsfulltrúa við fyrirspurn dags. 06.04.2018 fylgir erindi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. júní 2018 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Þorragötu 1 og 1A, Hörpugötu 7, 9,10,11,13 og 14 frá 18. maí 2018 til og með 15. júní 2018. Engar athugasemdir bárust. Gjald kr. 11.000