Sótt er um leyfi til að skipta úr tveimur íbúðum í þrjár, byggja björgunarsvalir á bakhlið og til að byggja geymslu fyrir hjól og vagna á bak við hús á lóð nr. 12 við Framnesveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. maí 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018. Stækkun: 10,1 ferm., 29,3 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.