Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN052943 þar sem gerð er grein fyrir aðstöðu lagerstjóra á millilofti í starfsmannakjarna milli mátlína I og J í húsi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg. Greinargerð brunahönnuðar dags. 11. janúar. 2018 fylgir. Stækkun millilofts: 16,4 ferm. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.