Sótt er um leyfi til að byggja fjögurra og fimm hæða stúdentagarð, fjórar álmur með 126 íbúðum og 118 einstaklingsherbergjum með bílageymslukjallara fyrir 40 bíla á lóð nr. 21 við Sæmundargötu. Stærð, A-rými: 13.049,1 ferm., 39.649,7 rúmm. B-rými: 915,2 ferm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. febrúar 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. febrúar 2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.