Sótt er um leyfi til að koma fyrir flóttasvölum á norðvestur- og suðvesturhlið, uppfæra brunamerkingar og gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum í norðausturhluta kjallara gististaðar í flokki II á lóð nr. 24 við Freyjugötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. desember 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2017.