Sótt er um leyfi til að breyta notkun úr verslunar- og íbúðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði, byggja kvist á vesturhlið þaks og breyta þakkanti, setja hurð út í garð á vesturhlið og rífa núverandi bílskúr og byggja nýjan í húsi á lóð nr. 42 við Langholtsveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. nóvember 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2017. Stærðir: Stækkun mhl.01 A-rými x ferm., x rúmm. Stærð nýs bílskúrs, mhl.02 A-rými x ferm., x rúmm. Rif eldri bílskúrs, mhl.02 A-rými x ferm., x rúmm. Samþykki aðliggjandi lóðarhafa dags. 28.11.2017 fylgja erindi. Gjald kr. 11.000