Sótt er um leyfi til að endurbæta eldvarnir og taka í notkun útgrafið sökkulrými undir vesturhluta húss og nýta sem geymslu í húsi á lóð nr. 32 við Borgartún. Umsögn burðarvirkishönnuðar ódagsett fylgir erindi. Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. október 2017 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2017. Stækkun, sökkulrými: 256,3 ferm., 370,9 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.