Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara þannig að bílastæðum verður fækkað úr 54 í 14 sem verða eingöngu fyrir rafmagnsbíla og komið fyrir tilheyrandi hleðslubúnaði, einnig að innrétta aðstöðu fyrir starfsfólk og stækka geymslurými í kjallara húss á lóð nr. 15-19 við Sæmundargötu. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 18. nóvember 2017 og umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 8. desember 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.