Sótt er um leyfi til að stækka sal 1 á 1. hæð, með því að saga hlut af steyptu gólfi og komið verður fyrir hallandi gólfi byggt upp af berandi timburburðarbitum og nýr stigi kemur í stað fyrir núverandi í norðvesturhorni húss á lóð nr. 8 við Álfabakka. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 2. nóv. 2017 fylgir. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.