Sótt er um leyfi til að breyta íbúð á 1. hæð og kjallara í tvær aðskildar íbúðir, lækka gólfplötu í kjallara, grafa frá suðurhlið og síkka glugga í kjallara ásamt því að breyta innra fyrirkomulagi íbúða í húsi á lóð nr. 7 við Bergþórugötu. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 04.07.2017 fylgir erindi ásamt samþykki meðeigenda og aðliggjandi lóðarhafa dags. 10.01.2018. Gjald kr. 11.000